|
Efnahagshrunið á Íslandi hefur verið til umfjöllunar á forsíðum stórblaða heimsins og rætt er um að efnahagsvandinn sé í raun dýrustu hamfarir í sögu þjóðarinnar. Þúsundir manna hafa misst atvinnuna og margir sjá ekki til sólar fyrir áhyggjum og kvíða yfir ástandinu og þeim atburðum og breytingum sem framtíðin kann að bera í skauti sínu.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Rannsóknir hafa gefið skýrt til kynna að skilnaður er líklegastur á fyrstu árum hjónabands (sambúðar), yfirleitt eftir fjögurra ára samveru. Af þeim sökum er mjög líklegt að ung börn séu í spilinu, börn á leikskólaaldri.
Fyrirlesturinn 'Áhrif skilnaðar á leikskólabörn' fjallar um, eins og titillinn gefur til kynna, þau áhrif sem skilnaður hefur á líðan og viðbrögð ungra barna. Meðal annars er fjallað um:
|
|
Lesa meira...
|
|
Eins og titillinn ber með sér fjallar fyrirlesturinn um áhrif meðvirkni á samskipti starfsmanna á vinnustað, en tilfinningalega líðan starfsmanna hefur áhrif á samskiptahæfni og frammistöðu í starfi.
|
|
Lesa meira...
|
|
Fyrirlestrinn 'Samskipti við börn og unglinga' fjallar um mikilvægar forsendur farsælla samskipta. Hvernig getum við áttað okkur betur á þörfum barna og unglinga?
Í mörgum tilfellum getur tjáning barna og og unglinga verið fremur óskýr, um hálfgert "dulmál" getur verið að ræða.
Mikilvægt að geta 'lesið á milli línanna'. Að áttað sig á þörfum barnsins / unglingsins, hvað boðskapur leynist að baki ytra látbragðs og orða.
Hér reynir á gott innsæi uppalenda, getu til að 'hlusta' eftir tilfinningum.
|
|
Lesa meira...
|
|
Í fyrirlestrinum 'Einelti á vinnustað' er fjallað um birtingarmyndir eineltis á vinnustað, hvað einkennir þá einstaklinga sem „liggja vel við höggi" og þá sem leggja aðra í einelti.
Einelti er oft á tíðum réttlætt sem eðlilegur þáttur í vinnuumhverfi og "falið" bak við félagslegar venjur og hegðun.
Ef marka má umræðu í samfélaginu um einelti á vinnustöðum verður ljóst, að ekki er ástæða til að ætla annað en vinnustaðaeinelti viðgangist hér á landi í talsverðum mæli.
Fjallað er um áhrif og afleiðingar eineltis og að síðustu, hvaða úrræði eru vænleg í baráttunni gegn einelti á vinnustöðum.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
|
|
|