Skip to content
narrow screen wide screen auto screen Increase font size Decrease font size Default font size blue color orange color green color

Úttekt og úrlausn

Námskeið
Vinnustofa - Lausn ágreinings og efling samskipta á vinnustað Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Vinnustofan er ætlað þeim sem vilja efla og þjálfa hæfni sína til að takast á við ágreining og krefjandi samskipti. Þátttakendur fá í hendur öflug ,verkfæri' þekkingar til betri árangurs á sviði samskipta.

Lýsing: Markmið vinnustofunnar ,Lausn ágreinings og efling samskipta á vinnustað‘ er að efla og þjálfa stjórnendur og starfsmenn til samskipta og samvinnu og þá einkum þegar upp koma erfið ágreiningsmál.

 

Meðal annars er fjallað um:kynning_namskeid

  • dýpri áhrifaþætti og forsendur samskipta (þá einkum í tengslum við ágreining).
  • ,sálfræðilega samninginn‘ (sem ákvarðar: ,hvernig við gerum hlutina hér’).
  • ástæður mótstöðu (resistance) í samskiptum.
  • hvernig við getum haft jákvæð áhrif á aðra þó við mætum harðri andstöðu.
  • samskiptaleikni og lausnarmiðaða nálgun.

 

Hugmyndin með vinnustofunni er að færa fólki „verkfæri", þekkingu og aðferðir sem stuðla að yfirvegun og leikni í samskiptum. Þátttakendum mun standa til boða að vinna með málefni af eigin starfsvettvangi eða vinna með tilbúin dæmi (klípusögur).

Lesa meira...
 
Uppeldi á öflugum nótum Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Því barni sem hefur gott sjálfstraust eru allir vegir færir ...

Markmiðið með námskeiðinu Uppeldi á öflugum nótum er að hjálpa foreldrum að tileinka sér einfaldar og öflugar aðferðir til að ná góðum árangri í uppeldinu.

uppeldi_a_oflugum_notumKenndar verða aðferðir til að:

  • Setja börnum skýr mörk án þess að refsa.
  • Efla sjálfsmynd og sjálfstraust barna.
  • Sigrast á tilfinningalegum hindrunum í vegi árangursríks uppeldis.
  • Efla jákvæð samskipti foreldra og barna.

Námskeiðið er byggt upp af stuttum fyrirlestrum, umræðum, hóp- og  einstaklingsverkefnum. Vinnuhefti er innifalið.

Lengd: 4 ½  klst.

Leiðbeinendur: Marteinn Steinar Jónsson, sálfræðingur, og  Guðmundur Karl Brynjarsson, sóknarprestur.

 
Efling og ávinningur trausts í samskiptum Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

hun_treystirNámskeiðið er ætlað öllum þeim sem vilja auka við þekkingu sína á aðferðum til að byggja upp aukinn trúnað og traust.

Námskeiðið er grundvallað á þeirri staðreynd að heilindi og traust eru hornsteinar velgengi og farsældar í mannlegum samskiptum, hvort sem um sé að ræða vinasambönd, fjölskyldur, viðskipti eða stjórnarfar.

Án trausts eru samskipti okkar dæmd til að mistakast, eins og dæmin í kringum okkur sanna.
Lesa meira...
 
Seigla er kjarni sigurviljans Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Námskeiðið, 'Seigla er kjarni sigurviljans er ætlað öllum þeim sem vilja efla árangursríkt hugarfar og er byggt á metsölubókinni 'Þú getur ...' sem kom út í árslok 2008.

Námskeiðið er þjálfunarnámskeið sem hvetur til bjartsýni og athafnagleði á óvissutímum. Þátttakendur fá tækifæri til að efla hæfni sína til að takast á við krefjandi aðstæður af styrk og baráttugleði. Lögð er áhersla á mikilvægi þess að líta á viðfangefni lífsins sem kærkomið tækifæri til þjálfunar.

Lesa meira...
 
Innleiðing skilvirkrar þjónustumenningar Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Tilvera fyrirtækja og stofnana byggir að verulegu leyti á hæfni og getu starfsmanna til að mæta væntingum og þörfum viðskiptavinarins.

Lesa meira...
 
Erfiði viðskiptavinurinn Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mikill ávinningur felst í því að geta tekið "vindinn úr seglum" þess sem er ósátt(ur) og stuðla að velvild og samstarfsvilja.

Mikilvægt er að stjórnendur og almennir starfsmenn búi yfir góðri hæfni til að takast á við erfiða viðskiptavini og/eða samstarfsmenn (reiða, ósanngjarna, o.s.frv.) fremur en að fara í varnarstöðu og lenda í átökum.

Lesa meira...
 
Sameining fyrirtækja Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

... eða þegar aðrar mikilvægar breytingar standa fyrir dyrum.

Meginmarkmið námskeiðsins er að vekja þátttakendur til vitundar um að hverju þarf að hyggja á sviði mannlega þáttarins til þess að góður árangur náist þegar fyrirtæki eru sameinuð eða aðra viðamiklar breytingar standa fyrir dyrum.
Lesa meira...
 
Ferill fyrirgefningarinnar Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Fólk á í mörgum tilfellum mjög erfitt með að yfirstíga tilfinningalegar hindranir sem hamla fyrirgefningu. Oft er um alvarleg særindi að ræða.

Farið er ofan í saumana á:

  • Orsökum og ástæðum þess að erfitt getur verið að fyrirgefa.
  • Hvernig unnt er yfirstíga tilfinningalegan skaða.
  • Hvernig við megnum að fyrirgefa.

Ferli fyrirgefningarinnar:
  1. Fyrsti áfangi Mikilvægi þess að ‘kortleggja’ sálræn meiðsl.
  2. Annar áfangi Að gangast við því sem mér tilheyrir.
  3. Þriðji áfangi Vilji til að draga þann seka til ábyrgðar.
  4. Fjórði áfangi Að jafna metin.
  5. Fimmti áfangi Að velja að fyrirgefa.
  6. Sjötti áfangi Ný sjálfsmynd.


Lengd: 6 kennslustundir.

 
Efling innsæis í samskiptum á vinnustað Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Góð geta til að setja sig inn í og skilja hvernig aðrir hugsa (gott innsæi) er ein meginforsenda góðra samskipta- og samvinnuhæfni.

Lesa meira...
 


Til umhugsunar ...

Sá sem þekkir aðra er lífsreyndur, sá, sem þekkir sjálfan sig er spekingur.

Kínverskt máltæki

Fá fréttabréf










milkmaid.jpg