Byltingarkennd nýjung - greiningartæki (hugbúnaður) í þágu fyrirtækja og stofnana

- Bylting í framsetningu upplýsinga. Á einu augabragði er hægt að greina öll mikilvægustu lykilatriðin.
- Einstaklega öflugt þekkingar- og gæðastjórnunartæki.
- Afraksturinn tryggir trausta og skilvirka ákvarðanatöku.
- Unnið er með persónlegar upplýsingar frá einstaklingum, hópum og stærri skipulagsheildum án þess að hið persónulega og sértæka glatist við úrvinnslu.
- Samþættir eiginlega (qualitative) og megindlega (quantitative) nálgun í rannsóknum.
Niðurstöður birtast myndrænt (í hreyfanlegu þrívíddarrými) auk ýtarlegra tölfræðilegra greiningarupplýsinga.
Sjá nánar: Glærukynning á Repertory Grid (PDF)
Úttekt og úrlausn er eini aðilinn á Íslandi sem býður upp á notkun greiningartækisins (hugbúnaðarins) við úttekt og ráðgjöf.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
,Fixed Role Therapy’ er meðferðartækni sem á rætur að rekja til ,Personal Construct Psychology' og byggist á því að skjólstæðingurinn skrifar, á grunni eftirfarandi fyrirmæla, sína eigin persónulýsingu:
Mig langar að biðja þig að skrifa persónulýsingu, einkennandi fyrir .............................................. Lýsingin sé eins og hún væri rituð af nánum vin (eða vinkonu) sem þekkti þig mjög náið. Hann (eða hún) tjáir sig af þekkingu, skilningi, hluttekningu og og næmni. Gættu þess að skrifa í þriðju persónu, þ.e. að tala um þig sem hann (eða hún). Þú gætir t.d. byrjað með því að segja “................................................... er ......................”
Eftir að persónulýsingin liggur fyrir útbýr meðferðaraðilinn aðra persónulýsingu og er tekið mið af persónulýsingu skjólstæðingsins við ritun hennar. Nýja lýsingin er þó töluvert breytt og endurbætt en þó ekki of mikið. Við ritun nýrrar persónulýsingar eru meðferðarmarkmið, óskir og þarfir skjólstæðingsins í fyrirrúmi.
|
|
Lesa meira...
|
|
Á allra síðustu árum hefur öflug sálfræðileg meðferðartækni rutt sér til rúms sem nýtist við meðferð djúpstæðs tilfinningavanda af margvíslegum toga, þá einkum eftiráfalls- og álagsröskunar (Post Traumatic Stress Disorder). Hér er átt við alvarlegan tilfinningavanda sem myndast getur af margvíslegum orsökum, svo sem tilfinningalegu og líkamlegu ofbeldi; kynferðislegri misnotkun; nauðgun; heimilisofbeldi; alvarlegum áföllum og slysum; náttúruhamförum (snjóflóðum, jarðskjálftum, o.s.frv.) og fl.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
|
|
|