Skip to content
narrow screen wide screen auto screen Increase font size Decrease font size Default font size blue color orange color green color

Úttekt og úrlausn

Greinar - vinnusálfræði
Jákvæð hugsun opnar leiðir - Hreyfing eins og vítamín fyrir sálina Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Félagslegur stuðningur skiptir öllu máli þegar fólk stendur frammi fyrir atvinnumissi, enda mikið högg fyrir sjálfsmynd margra að missa vinnuna. Þetta segir Marteinn Steinar Jónsson, fyrirtækja- og vinnusálfræðingur. Bendir hann á að flestum reynist erfiðast að höndla óvissuna sem felst í atvinnumissi og kvíðann sem fylgir því að vita ekki hvernig framtíðin líti út eða hvernig eigi að láta enda ná saman fjárhagslega.

„Á slíkum stundum er mikilvægt að hafa aðgang að einhverjum sem er tilbúinn til að hlusta og sýna hluttekningu sína,” segir Marteinn og tekur fram að góður hlustandi sé jafnvel mikilvægari en einhver sem sé boðinn og búinn að veita góð ráð.
Lesa meira...
 
Ánægðir starfsmenn auka samkeppnishæfni Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

smileVellíðan starfsmanna er ein mikilvægasta auðlind fyrirtækja og forsenda árangurs og samkeppnishæfni, að mati Marteins Steinars Jónssonar sálfræðings. Hann rekur sérfræðiþjónustuna Úttekt og úrlausn þar sem aðferðum klínískrar sálfræði er beitt til greiningar og úrlausna á vandamálum á sviði mannlega þáttarins innan fyrirtækja.

Lesa meira...
 
Einelti á vinnustað Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

eineltiGóð geta starfsmanna til að sinna starfi sínu af árangri byggist óumdeilanlega á gagnkvæmri virðingu og vellíðan í samskiptum. Einelti á vinnustað gerir þessar forsendur að engu, en einelti hefur niðurbrjótandi áhrif á fleiri en þolandann.

Einelti sundrar einingu meðal starfsmanna og því líklegt til að brjóta niður sjálfstraust og getu starfsmanna til að ná árangri í starfi. Einelti getur því verið alvarlegur dragbítur á afköst starfsmanna og þá um leið samkeppnishæfni fyrirtækja og stofnana.

Þeir sem leggja aðra í einelti gera það yfirleitt af ásettu ráði. Um er að ræða andfélagslegt ofbeldi er birtist sem þrálát árátta, knúin af einbeittum vilja. Markmið gerandans er fyrst og fremst það að sýna völd sín með því að meiða, lítillækka og brjóta fórnarlömb sín á bak aftur.

Einelti á vinnustað einkennist fyrst og fremst af misnotkun valds og hafa rannsóknir gefið skýrt til kynna að í mörgum tilfellum komast gerendur upp með hegðun sína. Þar sem gerandinn gegnir yfirmannsstöðu (sem er mjög algengt) verður nær ógjörningur fyrir þolandann að kæra eineltið.
Lesa meira...
 
Góður „mórall“ meiri afköst Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
”Atvinnurekendur eru í æ ríkari mæli að verða meðvitaðir um að andrúmsloftið eða „mórall“ á unity_copyvinnustað skiptir miklu fyrir árangur.

Rannsóknir sýna að afköst starfsmanna aukast og fólk er líklegra til að staldra lengur við á vinnustað þar sem almenn vellíðan og góðvild ríkir manna í milli. Ekki eru allir svo heppnir að geta skapað þannig andrúmsloft í sínu fyrirtæki en lausnin á vandanum þarf ekki endilega að vera flókin og til eru fagaðilar sem geta greint vandann og veitt góð ráð og handleiðslu um hvernig stuðla megi að bættum árangri. Marteinn Steinar Jónsson sálfræðingur er einn þeirra.

Lesa meira...
 


Til umhugsunar ...

Þú getur ekki komist undan ábyrgð morgundagsins með því að forðast hana í dag.

Abraham Lincoln

Fá fréttabréf










chagall1.jpg