Skip to content
narrow screen wide screen auto screen Increase font size Decrease font size Default font size blue color orange color green color

Úttekt og úrlausn

Handleiðsla og ráðgjöf Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Úttekt og úrlausn býður fram sérfræðiþjónustu á grunni handleiðslu og ráðgjafar í þágu starfsmanna, stjórnenda og starfshópa.

Viðfangsefnin geta verið af ýmsum toga:

  • Streita og kulnun í starfi.
  • Samskiptaerfiðleikar.
  • Vantraust, óánægja, þrúgandi starfsandi.
  • Erfiðleikar í einkalífi.
  • Erfiður stjórnunarvandi, t.d. viðbrögð við erfiðum samstarfsmönnum, viðskiptavinum, o.s.frv.

Í trúnaðarviðtali gefst tóm til að ræða viðkvæm og erfið málefni, greina orsakir og ástæður og vinna kerfisbundið að lausn þeirra viðfangsefna sem við er að eiga.

 

Mikilvægi innsæis í samskiptum

Góð geta til að setja sig inn í og skilja hvernig aðrir hugsa (gott innsæi) er ein meginforsenda góðrar hæfni á sviði samskipta og samvinnu.

  • Mikilvægur ávinningur felst í því að efla og skerpa innsæi á eigin viðbrögð og hegðun í samskiptum og samvinnu.
  • Jafnframt þessu er mikilvægt að efla skilning sinn á ástæðum að baki hegðun þeirra sem við þurfum að eiga samskipti við.
  • Aukið innsæi í samskiptum er líklegt til að stuðlað að betri árangri og vellíðan í starfi.

 

Innsæi í samskiptum eflir tilfinningagreind

  • Hugtakið tilfinningagreind, sem hefur verið mikið í umræðunni undanfarin ár vísar til hæfni til að skilja aðra og vera tilfinningalega meðvitaður, næm(ur) og hæf(ur) í samskiptum.
  • Fullyrt er að góð tilfinningagreind sé mikilvægari fyrir árangur en góð rökgreind.
  • Góð tilfinningagreind stuðlar að auknu traust milli stjórnenda, starfsmann og viðskiptavina.
  • Traust er forsenda þess að starfsmenn finni til samkenndar og megni að vinna saman af heilindum og árangri.

 

Starfshópar

Margt getur unnið gegn góðri líðan og árangri starfshópa. Ágreiningur og spenna í samskiptum getur í mörgum tilfellum verið alvarleg hindrun. Ástæður geta verið margvíslegar.

Oft er ásættanleg lausn ekki í sjónmáli og starfsmenn og yfirmenn of "flæktir" í málin til að geta miðlað málum af árangri.

Úttekt og úrlausn veitir handleiðslu, stuðning og aðstoð fyrir starfsmenn  fyrirtækja- og stofnana og fyrir aðra sem þurfa starfs síns vegna að njóta faglegrar handleiðslu.

 

 

Til umhugsunar ...

Mjúklegt andsvar stöðvar bræði, en meiðandi orð vekur reiði.

Orðskviðir 15:1

Fá fréttabréf










still_life.jpg