Skip to content
narrow screen wide screen auto screen Increase font size Decrease font size Default font size blue color orange color green color

Úttekt og úrlausn

Úttektir Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Úttekt og úrlausn er viðurkenndur þjónustuaðili Vinnueftirlits Ríkisins á sviði magnifyingsálfélagslegra áhættuþátta vinnuverndar. Hér er átt við alla þá sálfræðilegu og félagslegu áhrifaþætti er varða öruggt og heilsusamlegt starfsumhverfi.


Dæmi um sálfélagslega áhættuþætti:

  • Starfsskilyrði og streituálag á vinnustað.
  • Félagslegur og andlegur aðbúnaður á vinnustað.
  • Samskipti starfsmanna, stjórnenda, viðskiptavina, þjónustuþega.
  • Samþætting vinnu og einkalífs.
  • Einelti á vinnustað.
  • Kulnun í starfi.

Fyrirbyggjandi vinna er ávallt betri kostur en að þurfa að grípa til ráðstafana þegar í óefni er komið.


Dæmi um verkefni

  • Lausn ágreinings og efling starfsanda á vinnustað.
  • Stuðningur, ráðgjöf og handleiðsla fyrir stjórnendur, starfsmenn og starfshópa.
  • Efling liðsheilda. Úttekt á samstarfshæfni og getu til að vinna í teymi.
  • Vinna með fyrirtækjamenningu. Oft er brýnt að breyta viðteknum hugsanahætti sem vinnur getu stjórnenda og starfsmanna til að feta nýjar brautir.
  • Starfsmannaval og hæfnismat.
  • Stjórnendaþjálfun


Ávinningur úttektar

  • Nákvæm athugun á afstöðu, upplifun og viðhorfum starfsmanna og starfshópa stuðlar að því að gögnin verða á „tungumáli” þátttakenda.
  • Starfsmenn eru af þeim sökum mun líklegri til að „eigna” sér niðurstöður úttektar og leggja sig fram af áhuga við úrlausn þess sem við er að glíma.
  • Að öðrum kosti getur andstaða myndast sem vinnur gegn þeim árangri sem óskað er eftir.

Ferill úttektar:
  • Forsvarsmenn setja fram væntingar og óskir um viðfangsefnið. Málin eru rædd.
  • Kynningarfundur með starfsmönnum. Tækifæri til að ræða málin, spyrja spurninga.
  • Markhópur úttektar afmarkaður og persónuleg viðtöl tekin við hlutaðeigandi aðila.
  • Úrvinnsla gagna.
  • Niðurstöður úttektar eru settar fram í skriflegri greinargerð ásamt aðgerðaráætlun til lausnar vandans.
  • Niðurstöður kynntar hlutaðeigandi aðilum.
  • Verkefnum fylgt eftir þar til ásættanlegur árangur er í höfn.


Allar upplýsingar eru meðhöndlaðar af fyllstu gætni og í samræmi við siðareglur sálfræðinga um trúnað.
Þess er gætt að ekki sé hægt að rekja þær upplýsinga sem fram koma til einstakra þátttakenda.

fruits_copy

 


 

Til umhugsunar ...

Segðu ekki allt sem þú hugsar, en hugsaðu allt sem þú segir.

Fá fréttabréf










ambassa.gif