Skip to content
narrow screen wide screen auto screen Increase font size Decrease font size Default font size blue color orange color green color

Úttekt og úrlausn

Kynning á Úttekt og úrlausn Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Úttekt og úrlausn var stofnað í mars 1998 af Marteini Steinari Jónssyni sálfræðingi. Fyrirtækið býður vinnustöðum, fyrirtækjum og stofnunum upp á þjónustu á sviði fyrirtækja- og vinnusálfræði.

Markmið Úttektar og úrlausnar er að efla hæfni og getu vinnustaða, starfsmanna og stjórnenda í tengslum við þau viðfangsefni sem máli skipta fyrir góðan árangur, farsæl samskipti og vellíðan í starfi.

 

efesus1_copyFyrirtækja- og vinnusálfræði

Úttekt og úrlausn veitir þjónustu á grunni úttekta, námskeiða, fyrirlestra, handleiðslu/þjálfunar/stuðnings og jafnvel sálfræðilegra meðferðarúrræða, ef svo ber undir.

 

Viðurkenning Vinnueftirlits Ríkisins

Úttekt og úrlausn hefur viðurkenningu Vinnueftirlits Ríkisins til að veita ráðgjöf um andlega og félagslega áhættuþætti á vinnustöðum.

 

Grunngildi

Úttekt og úrlausn leggur sig fram um að veita góða og persónulega þjónustu.

  • Fagleg vinnubrögð. Áherslan er á faglega samþættingu þekkingar við þjónustu.
  • Heilindi. Ábyrgð og heilindi í fyrirrúmi.
  • Ánægja. Velferð og ánægja viðskiptavina í öndvegi.

 

 

 

 

Til umhugsunar ...

Heiðarleiki er fyrsti kaflinn í bók viskunnar.

Thomas Jefferson

Fá fréttabréf










citrus5.jpg