| Vinnustofa - Lausn ágreinings og efling samskipta á vinnustað |
|
|
|
Vinnustofan er ætlað þeim sem vilja efla og þjálfa hæfni sína til að takast á við ágreining og krefjandi samskipti. Þátttakendur fá í hendur öflug ,verkfæri' þekkingar til betri árangurs á sviði samskipta. Lýsing: Markmið vinnustofunnar ,Lausn ágreinings og efling samskipta á vinnustað‘ er að efla og þjálfa stjórnendur og starfsmenn til samskipta og samvinnu og þá einkum þegar upp koma erfið ágreiningsmál.
Meðal annars er fjallað um:
Hugmyndin með vinnustofunni er að færa fólki „verkfæri", þekkingu og aðferðir sem stuðla að yfirvegun og leikni í samskiptum. Þátttakendum mun standa til boða að vinna með málefni af eigin starfsvettvangi eða vinna með tilbúin dæmi (klípusögur).
Ávinningur:
Vinnustofan er fyrst og fremst ætluð þeim sem starfa saman, t.d. innan teymis, deildar eða á sviði innan fyrirtækja og stofnana. Umsjón: Marteinn Steinar Jónsson, fyrirtækja- og vinnusálfræðingur og sérfræðingur í klínískri sálfræði. Tími: (sex klukkustundir, annað hvort í eitt skipti eða í tvö skipti - þrjár klst. hverju sinni). Fjöldi þátttakenda: Tíu til þrjátíu.
|
|
