Byltingarkennd nýjung - greiningartæki (hugbúnaður) í þágu fyrirtækja og stofnana

- Bylting í framsetningu upplýsinga. Á einu augabragði er hægt að greina öll mikilvægustu lykilatriðin.
- Einstaklega öflugt þekkingar- og gæðastjórnunartæki.
- Afraksturinn tryggir trausta og skilvirka ákvarðanatöku.
- Unnið er með persónlegar upplýsingar frá einstaklingum, hópum og stærri skipulagsheildum án þess að hið persónulega og sértæka glatist við úrvinnslu.
- Samþættir eiginlega (qualitative) og megindlega (quantitative) nálgun í rannsóknum.
Niðurstöður birtast myndrænt (í hreyfanlegu þrívíddarrými) auk ýtarlegra tölfræðilegra greiningarupplýsinga.
Sjá nánar: Glærukynning á Repertory Grid (PDF)
Úttekt og úrlausn er eini aðilinn á Íslandi sem býður upp á notkun greiningartækisins (hugbúnaðarins) við úttekt og ráðgjöf.
Víðtækir notkunarmöguleikar:
- Frammistöðumat, t.d. í þágu stjórnendateymis.
- Markaðsrannsóknir (hvað aðgreinir góða vöru frá lakari?).
- Greining á vinnustaðarmenningu.
- Lausn ágreinings.
- Efling starfshópa (team development).
- Greining á ímynd fyrirtækisins (t.d. afstaða starfsmanna og viðskiptavina).
|
- Úttekt á afstöðu / ánægju starfsmanna og viðskiptavina.
- Einstaklingsráðgjöf og handleiðsla (strategic management).
- Starfsmanna- og stjórnendaþjálfun.
- Við gerð ráðningarviðmiða / í ráðningarferlinu.
|
Sérstaða og ávinningur:
-
 Nálgunin er ‘klæðskerasaumuð’. Gögnin eru á 'tungumáli' þátttakenda, sem hámarkar réttmæti niðurstaðna.
-
Gögn frá mörgum einstaklingum er hægt að ‚samkeyrðar’ í eina stóra heildarmynd.
-
Útlistar mikilvæg orsakatengsl; gefur nákvæma heildarsýn; afhjúpar ‚valþröng’ (dilemma's); mótstöðu gegn breytingum ... svo mætti lengi telja.
-
Aðferðin er grundvölluð á traustum fræðilegum grunni ‚Personal Construct Theory’.
- Dulkóðun upplýsinga er valkostur.
Aðeins nánar ...
Notkun greiningartækisins megnar að svipta hulunni af dýpri áhrifa- og orsakaþáttum, sem stuðlar að upplýstri ákvarðanatöku.
- Huglægum upplýsingum (rannsóknargögnunum) er komið yfir á mælanlegt form svo hægt sé að meðhöndla þær tölfræðilega. Aðferðir stærðfræðinnar (factor analysis, cluster analysis, o.fl.) nýtast við úrvinnslu.
- Magnbinding persónulegra gagna (eigindlegra) yfir á hlutlægt mælanlegt form (megindlegt) er nauðsynleg forsenda þess að hægt sé að 'matreiða' gögnin til dýpri skilnings og álykta út frá heildarsvörun þátttakenda.
Umfjöllun um greiningartækið The Economist
Um Repertory Grid
- ,Repertory Grid' er alhliða greiningartæki. Notagildi og sveigjanleiki er það víðfemur að hentar til notkunar hvort um sé að ræða úttekt á einstaklingum (sölumönnum, stjórnendum, o.s..frv.), vörumerkjum, áfangastöðum í ferðaþjónustu, fasteignum, verkþáttum, ... en svo mætti lengi telja.
- Í öllum tilfellum er hægt að nýta greiningartækið til að afhjúpa ,stóru myndina'. En jafnframt, draga minnstu smáatriði fram í dagsljósið.
- Fyrirlagning ,Repertory Grid' er fólgin í persónulegu viðtali. Ef viðfangefnið er úttekt á hæfni lykilstjórnenda fyrirtækis er áherslan á að greina þá eiginleika sem skipti mestu fyrir árangur í starfi (auk þess að skrá niður það sem ber vott um hið gagnstæða).
- Eftir að viðfangsefnið liggur fyrir er fyrsta skrefið að tilgreina þá stjórnendur sem úttektin skal beinist að. Þeir eru ,viðföng' úttektar (á ensku „elements”).
- Næsta skref felst í því að draga fram svokallaðar ,merkingarvíddir' (constructs). þá eiginleika sem stjórnendurnir eru metnir út frá (til dæmis: „miðlar verkefnum við annarra” andstætt því að viðkomandi „situr á verkefnum, deilir þeim ekki út”). Mikilvægt er að draga fram nákvæm og greinargóð svör. Þegar nægjanlegur fjöldi merkingarvídda liggur fyrir eru þær færðar inn á ,Repertory Grid’ eyðublað (skema).
- Því næst er lagt tölulegt mat á hvern og einn (stjórnanda) út frá hverri og einni merkingarvídd. Tölulegar upplýsingar eru ,mataðar´ inn í ,Repertory Grid´ forritið og unnið úr niðurstöðunum á grunni margvíslegra stærðfræðiaðgerða (t.d. þátta- og klasagreiningu).
- Með ,Repertory Grid’ greiningartækinu eru sértækar persónulegar upplýsingar flokkaðar af nákvæmni og koma greiningarniðurstöður fram með ýmsum hætti. Afraksturinn býður upp á einstakt tækifæri til nákvæmari úrvinnslu og umræðu og í framhaldi af því, stuðlar að upplýstri og hnitmiðaðri ákvarðanatöku.
Hafir þú einhverjar spurningar eða myndir vilja fá nánari kynningu á möguleikum greiningartækisins, hikaðu þá ekki við að hafa samband.
|