Skip to content
narrow screen wide screen auto screen Increase font size Decrease font size Default font size blue color orange color green color

Úttekt og úrlausn

Sérsniðnar lausnir í þágu fyrirtækja og stofnana
psychology_serviceÚttekt og úrlausn býður vinnustöðum, fyrirtækjum og stofnunum upp á víðtæka þjónustu á sviði fyrirtækja- og vinnusálfræði
 
Vinnustofa - Lausn ágreinings og efling samskipta á vinnustað

Vinnustofan er ætlað þeim sem vilja efla og þjálfa hæfni sína til að takast á við ágreining og krefjandi samskipti. Þátttakendur fá í hendur öflug ,verkfæri' þekkingar til betri árangurs á sviði samskipta.

Lýsing: Markmið vinnustofunnar ,Lausn ágreinings og efling samskipta á vinnustað‘ er að efla og þjálfa stjórnendur og starfsmenn til samskipta og samvinnu og þá einkum þegar upp koma erfið ágreiningsmál.

 

Meðal annars er fjallað um:kynning_namskeid

  • dýpri áhrifaþætti og forsendur samskipta (þá einkum í tengslum við ágreining).
  • ,sálfræðilega samninginn‘ (sem ákvarðar: ,hvernig við gerum hlutina hér’).
  • ástæður mótstöðu (resistance) í samskiptum.
  • hvernig við getum haft jákvæð áhrif á aðra þó við mætum harðri andstöðu.
  • samskiptaleikni og lausnarmiðaða nálgun.

 

Hugmyndin með vinnustofunni er að færa fólki „verkfæri", þekkingu og aðferðir sem stuðla að yfirvegun og leikni í samskiptum. Þátttakendum mun standa til boða að vinna með málefni af eigin starfsvettvangi eða vinna með tilbúin dæmi (klípusögur).

Lesa meira...
 
Heildarsýn á traustum grunni

Byltingarkennd nýjung - greiningartæki (hugbúnaður) í þágu fyrirtækja og stofnana

stjornendur

  • Bylting í framsetningu upplýsinga. Á einu augabragði er hægt að greina öll mikilvægustu lykilatriðin.
  • Einstaklega öflugt þekkingar- og gæðastjórnunartæki.
  • Afraksturinn tryggir trausta og skilvirka ákvarðanatöku.
  • Unnið er með persónlegar upplýsingar frá einstaklingum, hópum og stærri skipulagsheildum án þess að hið persónulega og sértæka glatist við úrvinnslu.
  • Samþættir eiginlega (qualitative) og megindlega (quantitative) nálgun í rannsóknum.

 

Niðurstöður birtast myndrænt
(í hreyfanlegu þrívíddarrými) auk ýtarlegra
tölfræðilegra greiningarupplýsinga.

Sjá nánar: Glærukynning á Repertory Grid (PDF)

Úttekt og úrlausn er eini aðilinn á Íslandi sem býður upp á notkun greiningartækisins (hugbúnaðarins) við úttekt og ráðgjöf.

Lesa meira...
 
EMDR - Eye Movement Desensitisation and Reprocessing

Á allra síðustu árum hefur öflug sálfræðileg meðferðartækni rutt sér til rúms sem nýtist við meðferð djúpstæðs tilfinningavanda af margvíslegum toga, þá einkum eftiráfalls- og álagsröskunar (Post Traumatic Stress Disorder). Hér er átt við alvarlegan tilfinningavanda sem myndast getur af margvíslegum orsökum, svo sem tilfinningalegu og líkamlegu ofbeldi; kynferðislegri misnotkun; nauðgun; heimilisofbeldi; alvarlegum áföllum og slysum; náttúruhamförum (snjóflóðum, jarðskjálftum, o.s.frv.) og fl.

Lesa meira...
 
Jákvæð hugsun opnar leiðir - Hreyfing eins og vítamín fyrir sálina Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Félagslegur stuðningur skiptir öllu máli þegar fólk stendur frammi fyrir atvinnumissi, enda mikið högg fyrir sjálfsmynd margra að missa vinnuna. Þetta segir Marteinn Steinar Jónsson, fyrirtækja- og vinnusálfræðingur. Bendir hann á að flestum reynist erfiðast að höndla óvissuna sem felst í atvinnumissi og kvíðann sem fylgir því að vita ekki hvernig framtíðin líti út eða hvernig eigi að láta enda ná saman fjárhagslega.

„Á slíkum stundum er mikilvægt að hafa aðgang að einhverjum sem er tilbúinn til að hlusta og sýna hluttekningu sína,” segir Marteinn og tekur fram að góður hlustandi sé jafnvel mikilvægari en einhver sem sé boðinn og búinn að veita góð ráð.
Lesa meira...
 
Þú getur sigrast á frestunaráráttu Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
„Ég ætlaði mér alltaf að gera þetta en ég kom því aldrei í verk", eru frekar dapurleg ummæli og áfellisdómur yfir eigin frammistöðu. Þegar tilhneigingin til að skjóta verkefnum á frest er farin að valda óþægindum tölum við um frestunaráráttu.

Tilhugsunin ein um krefjandi verkefni veldur mörgum kvíða. Þeir sem eiga við frestunaráráttu að stríða fara margir hverjir eins og kettir kringum heitan graut og sniðganga mikilvæg verkefni, svo sem að skila ritgerð, ljúka við skattskýrslu eða að hringja mikilvægt símtal.
Lesa meira...
 
'Þú getur ... '
Marteinn Steinar Jónsson er einn af höfundum metsölubókarinnar Þú getur ... sem kom út um síðustu jól. Höfundar hvetja lesandann til að uppgötva og nýta sér þá þrautseigju og styrk sem sem hann býr yfir og takast á við kringumstæður lífisins af jákvæðu hugarfari.

Þú getur ... náð tökum á streitunni, notið augnabliksins, leyst ágreining, sigrast á frestunaráráttu og fylgt málum eftir af þrautseigju og dug.

Höfum hugfast að óvissa, erfiðleikar og breytingar eru oft undanfari nýrra tækifæra.

Útgefandi er Hagkaup, þar sem bókin fæst keypt.

 

Til umhugsunar ...

Ef þú getur hlustað vel, af hluttekningu, nærgætni og skilning, þá munu aðrir treysta þér.

Fá fréttabréf










still_life3.jpg